skip to Main Content

Á milli vatnanna í Svínadal í Borgarfirði renna tvær litlar ár. Sú neðri, sem er á milli Eyrarvatns og Þórisstaðavatns, heitir Selós en sú efri sem er á milli Geitabergsvatns og Þórisstaðavatns heitir Þverá. Veitt er á eina stöng í hvorri á.

Seldir eru veiðipakkar í árnar þar sem 6 veiðidagar eru í hverjum pakka sem eru með um 15 daga millibili. Á hverjum veiðidegi veiðir viðkomandi veiðimaður hálfan dag í Selósi og hálfan dag í Þverá. 

Aðeins er veitt á flugu – Veiða má 5 laxa á vakt en aðeins drepa 1 lax á vakt  – Sleppa skal öllum löxum 68 sm og stærri, öllum legnum löxum og öllum löxum veiddum 1. september og síðar.

Veiðileyfunum fylgja 2 stangir í vötnunum í Svínadal , þ.e.a.s. norðanverðu Eyrarvatni, Þórisstaðavatni og Geitabergsvatni.

 

Verðskrá

 

Nánari uppl. í laxaleir@laxaleir.is

Back To Top